Svæðisráð

Ráðherra skipulagsmála skipar svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags og ber ráðið ábyrgð á gerð þess. Í svæðisráðinu eiga sæti fulltrúar ríkisins og sveitarfélaga og starfa fulltrúar í svæðisráði í umboði þeirra sem þá tilnefna.

Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði upphaflega svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði í janúar 2019, og var þá svo skipað: 

  • Stefán Gíslason, formaður, skipaður án tilnefningar. Varafulltrúi: Hafsteinn Pálsson.
  • Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir, Gauti Jóhannesson og Jón Björn Hákonarson, tilnefnd af aðliggjandi sveitarfélögum. Varafulltrúar: Jón Þórðarson, Kári Snær Valtingojer og Eydís Ásbjörnsdóttir.
  • Ásta Einarsdóttir, tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Varafulltrúi: Arnór Snæbjörnsson
  • Ásta Þorleifsdóttir, tilnefnd af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Varafulltrúi: Eggert Ólafsson.
  • Erla Sigríður Gestsdóttir, tilnefnd af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Varafulltrúi: Hreinn Hrafnkelsson.
  • Skarphéðinn Smári Þórhallsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Varafulltrúi: Bryndís Gunnlaugsdóttir.

Með forsetaúrskurði 28. nóvember 2021 um skiptingu stjórnarráðsins færðust skipulagsmál frá umhverfis- og auðlindaráðherra til innviðaráðherra. Innviðaráðherra skipaði nýjan formann svæðisráðs í janúar 2022. Jafnframt hafa í ferlinu orðið breytingar á einstökum fulltrúum í ráðinu. Svæðisráðið er svo skipað í desember 2022:

  • Magnús Jóhannesson, formaður, skipaður án tilnefningar. Varafulltrúi: Eggert
    Ólafsson.
  • Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir, Gauti Jóhannesson og Jón Björn Hákonarson, tilnefnd af aðliggjandi sveitarfélögum. Varafulltrúar: Jón Þórðarson, Kári Snær Valtingojer og Sigurður Ólafsson.
  • Freydís Vigfúsdóttir, fulltrúi matvælaráðuneytis. Varafulltrúi: Hjalti Jón Guðmundsson.
  • Ásta Þorleifsdóttir, fulltrúi innviðaráðuneytis. Varafulltrúi: Friðfinnur Skaftason.
  • Erla Sigríður Gestsdóttir, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Varafulltrúi: Hreinn Hrafnkelsson.
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Varafulltrúi: Bryndís Gunnlaugsdóttir