Svæðisráð
Ráðherra skipulagsmála skipar svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags og ber ráðið ábyrgð á gerð þess. Í svæðisráðinu eiga sæti fulltrúar ríkisins og sveitarfélaga og starfa fulltrúar í svæðisráði í umboði þeirra sem þá tilnefna.
Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði upphaflega svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Vestfirði í janúar 2019, og var þá svo skipað:
- Stefán Gíslason, formaður, skipaður án tilnefningar. Varafulltrúi: Hafsteinn Pálsson.
- Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, Lilja Magnúsdóttir og Þorgeir Pálsson, tilnefnd af aðliggjandi sveitarfélögum. Varafulltrúar: Samúel Kristjánsson, Jón Árnason og Hafdís Sturlaugsdóttir.
- Arnór Snæbjörnsson, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Varafulltrúi: Ásta Einarsdóttir.
- Ásta Þorleifsdóttir, tilnefnd af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Varafulltrúi: Eggert Ólafsson.
- Erla Sigríður Gestsdóttir, tilnefnd af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Varafulltrúi: Hreinn Hrafnkelsson.
- Aðalsteinn Óskarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Varafulltrúi: Bryndís Gunnlaugsdóttir.
Með forsetaúrskurði 28. nóvember 2021 um skiptingu stjórnarráðsins færðust skipulagsmál frá umhverfis- og auðlindaráðherra til innviðaráðherra. Innviðaráðherra skipaði nýjan formann svæðisráðs í janúar 2022. Jafnframt hafa í ferlinu orðið breytingar á einstökum fulltrúum í ráðinu. Svæðisráðið er svo skipað í desember 2022:
- Magnús Jóhannesson, formaður, skipaður án tilnefningar. Varafulltrúi: Eggert Ólafsson.
- Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, Lilja Magnúsdóttir og Þorgeir Pálsson, tilnefnd af aðliggjandi sveitarfélögum. Varafulltrúar: Samúel Kristjánsson, Jón Árnason og Hafdís Sturlaugsdóttir.
- Freydís Vigfúsdóttir, fulltrúi matvælaráðuneytis. Varafulltrúi: Hjalti Jón Guðmundsson.
- Ásta Þorleifsdóttir, fulltrúi innviðaráðuneytis. Varafulltrúi: Friðfinnur Skaftason.
- Erla Sigríður Gestsdóttir, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Varafulltrúi: Hreinn Hrafnkelsson.
- Aðalsteinn Óskarsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Varafulltrúi: Bryndís Gunnlaugsdóttir.