Svæðisráð

Ráðherra skipulagsmála skipar svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags og ber ráðið ábyrgð á gerð þess. Í svæðisráðinu eiga sæti fulltrúar ríkisins og sveitarfélaga og starfa fulltrúar í svæðisráði í umboði þeirra sem þá tilnefna.

Innviðaráðherra skipaði nýjan formann svæðisráðs í janúar 2022. Jafnframt hafa í ferlinu orðið breytingar á einstökum fulltrúum í ráðinu. Svæðisráðið er svo skipað í desember 2022:


  • Magnús Jóhannesson, formaður, skipaður án tilnefningar. Varafulltrúi: Eggert Ólafsson.
  • Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, Lilja Magnúsdóttir og Þorgeir Pálsson, tilnefnd af aðliggjandi sveitarfélögum. Varafulltrúar: Samúel Kristjánsson, Jón Árnason og Hafdís Sturlaugsdóttir.
  • Freydís Vigfúsdóttir, fulltrúi matvælaráðuneytis. Varafulltrúi: Hjalti Jón Guðmundsson.
  • Ásta Þorleifsdóttir, fulltrúi innviðaráðuneytis. Varafulltrúi: Friðfinnur Skaftason.
  • Erla Sigríður Gestsdóttir, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Varafulltrúi: Hreinn Hrafnkelsson.
  • Aðalsteinn Óskarsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Varafulltrúi: Bryndís Gunnlaugsdóttir.

Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði fyrst svæðisráð í janúar 2019 og var Stefán Gíslason formaður . Í lýsingu fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum má finna nánari upplýsingar um upphaflega skipan svæðisráðs.