• Kort af tillögum eldissvæðum í Arnarfirði

14.8.2020

Athugasemdir við tillögu Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum vegna fiskeldis í Arnarfirði

Skipulagsstofnun auglýsti þann 3. júlí tillögu Hafrannsóknastofnunar að eldissvæðum vegna fiskeldis í Arnarfirði í samræmi við 4. gr. a í lögum um fiskeldi. Kynningartími var til 7. ágúst síðastliðin. Með kynningu tillögunnar gafst stjórnvöldum aðliggjandi sveitarfélaga og þeim sem búa yfir þekkingu á náttúrufari og nýtingu á svæðinu tækifæri til að koma á framfæri upplýsingum um aðstæður og starfsemi á svæðinu sem mikilvægt er að hafa í huga, áður en ákvörðun er tekin um afmörkun eldissvæðis. Kynningargögn og nánari upplýsingar.

Skipulagsstofnun vinnur nú að umsögn til Hafrannsóknarstofnunar þar sem gerð verður grein fyrir þeim athugasemdum sem bárust á kynningartímanum. 

Athugasemdir