• SSSK-Austfirdir-mynd

15.6.2022

Strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022

Skipulagstillaga

Fyrir liggur tillaga að Strandsvæðisskipulagi Austfjarða 2022 sem kynnt er samkvæmt 12. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018.

Í skipulagstillögunni er sett fram stefna um nýtingu svæðis sem nær yfir firði og flóa frá Almenningsfles í norðri að Hvítingum í suðri.

Skipulagstillagan ásamt umhverfismati er aðgengileg á www.hafskipulag.is og liggur jafnframt frammi hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík og á skrifstofum Múlaþings og Fjarðabyggðar. Hana má einnig nálgast hér að neðan.

Kynningarfundir

Sumarið 2022 eru kynningarfundir um skipulagstillöguna haldnir á eftirfarandi stöðum:

  • Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar, 27. júní kl. 16:30-18:00
  • Menningar- og félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði, 28 júní kl. 16:30-18:00
  • Skrifstofu Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, Reykjavík, 9. ágúst kl. 13:30-15:30

Allir sem vilja sig láta varða skipulag svæðisins eru hvattir til að kynna sér skipulagstillöguna. Allir sem þess óska geta komið á framfæri ábendingum og gert athugasemdir við skipulagstillöguna og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri er til 15. september 2022.

Athugasemdum skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík, með tölvupósti á netfangið hafskipulag@skipulag.is eða um athugasemdagátt á www.hafskipulag.is

Svæðisráð Austfjarða


Strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022: Tillaga svæðisráðs til kynningar

Strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022: Uppdráttur

Umhverfismatsskýrsla: Umhverfismat tillögu svæðisráðs að strandsvæðisskipulagi Austfjarða